AIC – ÍSLAND / ICELAND
Avians ehf., Nauthólsvegi 66, 102 Reykjavík /
Avians, Nautholsvegi 66, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@avians.is
https://www.avians.is/ 

 
AIC A 14/2026
Effective from  29 OCT 2026
Published on 18 SEP 2026
 

 
BIHU flugradíó fjarþjónusta frá BIEG / 
BIHU aerodrome flight information service remote from BIEG

Efnisleg ábyrgð: Avians

1 Inngangur

Þetta upplýsingabréf segir frá því að fyrirhugað er að færa flugradíóþjónustu sem veitt er fyrir Húsavíkurflugvöll til Egilsstaðaflugvallar. Norðurþing mun sjá um eftirlit með Húsavíkurflugvelli og vetrarþjónustu.
Ekkert áætlanaflug er nú um Húsavíkurflugvöll. Eftir að áætlanaflugi var hætt er lítið um flug. Fjöldi sjúkrafluga hefur verið undir 10 á ári undanfarin ár.
Veitt er flugradíóþjónusta fyrir sjúkraflug.
Tilgangur breytingarinnar er að tryggja örugga flugradíóþjónustu á Húsavíkurflugvelli fyrir sjúkraflug en jafnframt nýta betur fjármuni og mannskap.
Vegna lélegs ástands og innvistar í turninum á Húsavíkurflugvelli er flugradíóþjónusta nú þegar unnin með myndavélum úr öðru húsnæði á flugvellinum svo að breytingin snýr að því að færa þá vinnustöðu til Egilsstaðaflugvallar.

2 Innleiðing

Tryggja þarf flugradíó þjónustu á Húsavíkurflugvelli fyrir sjúkraflug, setja upp búnaði og verklag fyrir vinnuaðstöðu á Egilsstaðaflugvelli og þjálfa flugradíómenn sem veita munu þjónustuna. 
Verkefnið kallar á öryggisferli, samþykki Samgöngustofu og uppfærslu AIP ICELAND. 
Stefnt er á að verkefnið klárist ekki seinna en á fyrsta ársfjórðungi 2027.

3 Tengiliðir

Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
 

 
Netfang / Email:  procedures@avians.is

Sími / Phone:  +354 424 4000
 

 
Upplýsingabréf fellt út gildi:
Ekkert
 

 
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
Ekkert
 

ENDIR / END